Multivac ehf – Dragháls 18, 110 Reykjavík - Sími: 554-2100 – VSK nr: 122425 – Kennitala: 621215-1910
Dreifing á höfuðborgarsvæðinu
Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 14:00 til að vera afgreiddar næsta virka dag. Allar pantanir sem eru yfir 20.000 kr. án vsk. eru sendar án sendingarkostnaðar.
Útkeyrsla á landsbyggðinni
Viðskiptavinir greiða fyrir flutning með sínum flutningsaðilum ( Flytjanda, Landflutningum o.s.frv. ). Multivac ehf kemur vörum viðskiptavina án endurgjalds ef lágmarkspöntun ( 20.00 kr án vsk ) er náð á dreifingamiðstöð innan höfuðborgarsvæðis.
Allar pantanir þurfa að berast sólarhring fyrir brottför.
Vöruskil
Ef skila á vöru skal kaupandi koma athugasemdum til skila til starfsmanna Multivac ehf innan sólarhrings frá móttöku vöru.
Gallaðar eða rangt afgreiddar vörur utan höfuðborgarsvæðisins skulu endursendar nema um annað sé samið sérstaklega . Kreditreikningur er gerður eftir að varan berst til okkar og hefur verið yfirfarin af móttöku.
Reikningsviðskipti
Sendur er reikningur fyrir vörum til þeirra viðskiptavina sem ekki hafa samið um staðgreiðslu eða greiðslur með greiðslukortum. Gjalddagar reikninga eru í samræmi við þá samninga sem eru í gildi milli Multivac ehf og viðskiptavinar.
Dráttarvextir reiknast í samræmi við lög nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu og miðast við alla reikninga sem eru greiddir eftir eindaga.
Athugasemdir vegna reikninga þurfa að berast innan 10 daga frá útgáfudegi reiknings. Verði ágreiningur um fjárhæð reiknings er viðskiptamanni einungis heimilt að bíða með greiðslu á þeirri fjárhæð sem raunverulegur ágreiningur er um.
Öryggisskilmálar
Multivac ehf tekur við öllum helstu greiðslukortum. Þegar gengið er frá greiðslu fer færslan í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar. Multivac ehf hefur ekki aðgang að kortaupplýsingum og safnar þeim ekki.
Opnunatími
Mán-Fim 8:00-16:00
Fös 8:00-15:15
Lokað er um helgar
Multivac ehf
Dragháls 18,
110 Reykjavík
Sími: 554-2100